Skinney-Þinganes hefur nýverið eignast glæsilegt, handsmíðað skipslíkan af Hvanney SF-51 sem nú prýðir anddyri höfuðstöðva fyrirtækisins í Krossey á Höfn. Líkanið er meistaralegt handverk Ragnars Imsland, sem er þekktur fyrir smíði nákvæmra skipslíkana sem endurspegla sögu og menningu íslenskrar sjómennsku.
Skipið Hvanney hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu útgerðarinnar, og bætist líkanið nú við þau sem þegar eru til sýnis í móttökunni. Með sýningunni er saga og þróun Skinneyjar-Þinganess gerð sýnileg gestum og starfsfólki, með það að markmiði að varðveita minningar um lykilþætti í sögu sjávarútvegsins á Höfn og heiðra þau skip og sjómenn sem mótað hafa starfsemi fyrirtækisins.
Við afhendingu líkansins var Ragnar viðstaddur og má sjá hann á meðfylgjandi mynd við líkanið af Hvanney SF-51.