FYRIRTÆKIÐ
FYRIRTÆKIÐ
Skinney – Þinganes leggur áherslu á ábyrgar fiskveiðar, framleiðslu á gæðavörum úr villtu sjávarfangi og traust viðskipti. Félagið hefur yfir að ráða aflaheimildum úr margvíslegum nytjastofnum á Íslandsmiðum, rekur fjölbreytta og öfluga útgerð og fiskvinnslu.
Félagið leggur áherslu á að tryggja starfsfólki sínu góðan aðbúnað og öryggi. Bakgrunnur, þjóðerni, menntun og aldur þess er ólíkur sem er einn af styrkleikum fyrirtækisins.
Félagið gerir út eitt uppsjávarskip, þrjú togveiðiskip og einn línubát. Félagið er jafnframt í veiðisamstarfi við Gjögur hf. um veiðar á uppsjávarfiski.
Skinney-Þinganes leggur áherslu á gott viðhald og umhirðu skipanna og leitast við hafa aðbúnað fyrir áhafnir sem bestan.
Félagið rekur einnig þrjár verksmiðjur. Fiskimjölverksmiðju á Höfn, fjölþætta vinnslu á Höfn fyrir uppsjávarfisk, bolfisk og humar ásamt sérhæfðri vinnslu á bolfiski á Þorlákshöfn.
Samstæðan samanstendur af móðurfélaginu, Skinney-Þinganesi hf. og dótturfélögum þess; Selbakka ehf., Horn raf og vélaverkstæði ehf., eignarhaldsfélaginu Þingey ehf., Útgerðarfélaginu Vigri ehf., Hvanney ehf. og Marine PetTreats ehf. Félagið á einnig hlut í Iceland Pelagic ehf., StorMar ehf., Laugafiski ehf., Kaldvík AS og Flateyjarbúinu ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Aðalsteinn Ingólfsson
Forstjóri
Ásgeir Gunnarsson
Framkvæmdastjóri veiða
Guðrún Ingólfsdóttir
Fjármálastjóri
Ingvaldur Mar Ingvaldsson
Framkvæmdastjóri bolfisks
STJÓRN OG VARASTJÓRN
Sigurður Ægir Birgisson
Formaður
Elín Arna Gunnarsdóttir
Friðrik Þór Ingvaldsson
Katrín Ásgrímsdóttir
Margrét Ingólfsdóttir
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Aðalsteinn Ingólfsson
Forstjóri
Ásgeir Gunnarsson
Framkvæmdastjóri veiða
Guðrún Ingólfsdóttir
Fjármálastjóri
Ingvaldur Mar Ingvaldsson
Framkvæmdastjóri bolfisks
STJÓRN
Sigurður Ægir Birgisson
Formaður
Elín Arna Gunnarsdóttir
Friðrik Þór Ingvaldsson
Katrín Ásgrímsdóttir
Margrét Ingólfsdóttir
Hjá fyrirtækinu starfa 280–300 manns að jafnaði. Mikil þekking á ólíkum sviðum er til staðar innan fyrirtækisins. Hjá okkur starfa um 90 sjómenn, um 140 manns starfa við vinnslu og í stoðdeildum og á skrifstofu starfa um 70 manns.