Stuðningur við Rafíþróttadeild Sindra

Skinney-Þinganes leggur áherslu á samfélagslega ábyrgð, og vill starfa í sátt við umhverfið og samfélagið. Það gerum við m.a. með stuðningi við íþrótta- og menningarstarf í nærsamfélaginu.  Fyrirtækið er stoltur stuðningsaðili Rafíþróttadeildar Sindra sem ritaði  þessa skemmtilegu grein sem birtist í Eystrahorni í vikunni sem við deilum hér:

Rafíþróttadeild Sindra hóf starfsemi sína síðasta haust af krafti og hefur starfið gengið ákaflega vel með aðstöðu í Vöruhúsinu. Fljótlega kom þó í ljós þörfin fyrir deildina að eiga sínar eigin tölvur fyrir iðkendur að nota og að vera í aðstöðu sem þau gætu haft útaf fyrir sig. Deildinni barst stuðningur frá Hirðingjunum varðandi tölvukaup og nú hefur þeim borist áframhaldandi stuðningur frá Skinney-Þinganesi varðandi aðstöðu. Í síðustu viku var undirritaður samningur á milli Rafíþróttadeildar Sindra og Skinneyjar-Þinganess um afnot að húsnæði þeirra Viðreisn, og mun starfsemi deildarinnar flytja sig þangað um leið og húsnæðið er klárt. Erum við hjá Sindra ákaflega þakklát fyrir þann stuðning sem við fáum og er það
mikilvægt að geta byggt upp starfið faglega og til fyrirmyndar fyrir iðkendur okkar. Því er stuðningur samfélagsins og öflugra fyrirtækja ómetanlegur og erum við ákaflega þakk
lát. Takk Skinney-Þinganes og áfram Sindri!

DEILA FRÉTT

Krossey, 780 Hornafjörður

+354 470 8100

Form - Ísl

Skinney-Þinganes tekur á móti rafrænum reikningum í gegnum skeytamiðlun Inexchange eða á netfangið [email protected]